Fara í efni

Garðplöntustöðin er lokuð yfir veturinn en vefverslunin er opin

Sumarblómaþjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir

Við sjáum um blómin. Þið takið við hrósinu.

Ilmbjörkin gróðursetur sumarblóm í ker og beð við fyrirtæki og stofnanir á Austurlandi. Plönturnar eru ræktaðar hjá okkur á Reyðarfirði, mold og áburður fylgja, og við mætum á hverju vori án þess að þið þurfið að muna eftir því.

  • Plöntur úr eigin ræktun
  • Mold og áburður í kerin
  • Gróðursetning
  • Árleg endurkoma
Hafðu samband fyrir tilboð

Svona virkar þetta

  1. 1

    Þið hafið samband

    Sendið okkur línu eða hringið og segið okkur hvar kerin standa og hvenær þau þurfa að vera tilbúin.

  2. 2

    Við skoðum kerin

    Við metum fjölda og stærð kerja eða beða og sendum ykkur tilboð. Engin ker? Við hjálpum ykkur að finna þau.

  3. 3

    Við gróðursetjum

    Kerin eru tilbúin fyrir sjómannadag eða 17. júní, eftir því sem hentar ykkur.

  4. 4

    Og komum aftur næsta vor

    Þið þurfið ekki að panta aftur. Við mætum árlega þar til þið segið annað.

Ker ársins 2027

Austfirsk sól

Á hverju ári hönnum við eitt ker ársins sem öll fyrirtækin fá. Árið 2027 er það Austfirsk sól: gult, appelsínugult og silfur. Hlýtt og sést langt að, líka þá daga sem sólin sjálf lætur ekki sjá sig.

Sýningarker stendur við garðplöntustöðina á Hjallaleiru 1 frá vori 2027. Komið við og sjáið það með eigin augum.

Samsetningin lagar sig að stærð kersins. Hvert ker fær sinn skammt af sólinni.

Vantar ker?

Engin ker? Ekkert mál.

Mörg fyrirtæki langar að taka á móti fólki með blómum en eiga engin ker. Við hjálpum ykkur að finna ker sem henta staðnum og pöntum þau fyrir ykkur. Við seljum ekki ker sjálf, en við vitum hvaða ker þola austfirskt rok og hver fjúka.

Fá aðstoð við kerin
  • RáðgjöfStærð, efni og fjöldi kerja sem hentar inngangi, lóð og útliti fyrirtækisins.
  • Við finnum og pöntumVið erum milliliðurinn og pöntum kerin hjá birgjum fyrir ykkur.
  • Engar óvæntar tölurÞið sjáið kostina og verðið áður en nokkuð er pantað.
  • Blómin fylgjaÞegar kerin eru komin á sinn stað gróðursetjum við ker ársins í þau.

Fyrir ker af öllum stærðum og beð

Stór ker

Við inngang eða á lóð. Full útgáfa af keri ársins.

Lítil ker

Við dyr, á tröppum eða á svölum.

Mjög lítil ker

Í glugga eða á borð. Smá sól þar sem pláss er lítið.

Beð

Sumarblómabeð á lóð fyrirtækisins, í sömu litum.

Verð fer eftir fjölda og stærð kerja. Við gerum tilboð fyrir hvert fyrirtæki.

Af hverju Ilmbjörkin?

  • Ræktað í heimabyggð

    Plönturnar eru ræktaðar á Reyðarfirði og venjast austfirsku veðri frá fyrsta degi.

  • Gæði plantnanna

    Við ræktum sjálf og veljum aðeins plöntur sem við myndum vilja hafa við okkar eigin dyr.

  • Fagþekking

    Kristín Snorradóttir er skrúðgarðyrkjumeistari og hefur unnið við garðyrkju frá 15 ára aldri.

  • Áhyggjulaust

    Við sjáum um þetta, ár eftir ár. Þið þurfið hvorki að skipuleggja, velja blóm né panta.

Hafðu samband fyrir tilboð

Segðu okkur hvar fyrirtækið er, um það bil hve mörg ker eða beð og hvort þau þurfa að vera tilbúin fyrir sjómannadag eða 17. júní. Ef ykkur vantar ker, segið okkur frá staðnum og við finnum lausn. Við svörum með tilboði.

Sími: 768-9485
Netfang: torfkofinn@gmail.com
Hjallaleira 1, 731 Reyðarfjörður

Reitir merktir * eru nauðsynlegir