Sumarblóm og blómaker – ræktuð á Austurlandi
Ilmbjörkin ræktar sumarblóm fyrir beð, ker og opin svæði. Við sjáum um allt ferlið, frá sáningu í febrúar til afhendingar á fullræktuðum plöntum í byrjun sumars.
Við ræktum öll sumarblóm Fjarðabyggðar og vitum því hvað þarf til að blómin standi út sumarið við austfirskar aðstæður.
Fyrir sveitarfélög
- Sumarblóm fyrir beð, ker og opin svæði
- Tegundir, litir og magn ákveðin í samráði við ykkur
- Plöntur sem ræktaðar eru í heimabyggð og þurfa ekki langan flutning
- Ráðgjöf skrúðgarðyrkjumeistara um val á plöntum
Tímasetning skiptir máli: fræ eru pöntuð í nóvember og sáning hefst í febrúar. Best er því að ganga frá pöntun fyrir næsta sumar í október eða byrjun nóvember.
Fyrir fyrirtæki
Falleg blómaker við innganginn taka vel á móti viðskiptavinum og starfsfólki. Við ræktum blómin og plöntum þeim í kerin ykkar á vorin. Yfir sumarið veitum við ráð um vökvun og umhirðu.
- Blóm í ker við inngang, á svölum eða á lóð
- Litir og tegundir í samræmi við útlit fyrirtækisins
- Fagleg ráðgjöf um val á kerjum og staðsetningu
Af hverju Ilmbjörkin?
-
Ræktað í heimabyggð
Plönturnar eru ræktaðar á Reyðarfirði og venjast austfirsku veðurfari frá upphafi.
-
Reynsla af stórum verkefnum
Við ræktum öll sumarblóm Fjarðabyggðar og þekkjum kröfur sveitarfélaga um magn, gæði og afhendingartíma.
-
Fagþekking
Kristín Snorradóttir, eigandi stöðvarinnar, er skrúðgarðyrkjumeistari með áratuga reynslu af garðyrkju á Austurlandi.
Senda fyrirspurn
Segðu okkur í stuttu máli frá verkefninu: um það bil hversu mörg beð eða ker, óskir um liti og tegundir, og hvenær blómin þurfa að vera tilbúin. Við svörum með tillögu og verði.
Sími: 768-9485
Netfang: torfkofinn@gmail.com
Hjallaleira 1, 730 Reyðarfirði
