{"product_id":"skordyraeitur-insektfri-spruzit","title":"Skordýraeitur - InsektFri Spruzit","description":"\u003ch2 class=\"p1\"\u003eEcostyle \u003c\/h2\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eGegn blaðlús, mjöllús (hvítri flugu), ullarlús, skjaldlús, kögurvængjum, fiðrildalirfum, ranabjöllu og gróðurhúsaspunamítli á skraut\u003cspan class=\"s1\"\u003ejurtum, grænmeti, berjarunnum og ávaxtatrjám.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cspan class=\"s1\"\u003eLausn tilbúin til notkunar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3 class=\"p1\"\u003eNotkun\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eMá nota innan- og utandyra sem og í gróðurhúsum. 500 ml duga á 5-15 m2. Hristist fyrir notkun.\u003cbr\u003eÚðið þegar verður vart við óværu. Virka efnið pýretrín er virkt á meindýr sem bæði naga plöntur og sjúga úr þeim safa. Efnið hefur snertivirkni en brotnar hratt niður í sólarljósi. Nauðsynlegt getur verið að endurtaka úðun, en stök úðun er oftast ekki nægjanleg vegna þess að efnið endist ekki lengi á yfirborði plöntunnar. Úðið ekki í við háan hita, virkni efnisins minnkar ef hiti fer yfir 25°C. Gott að úða snemma morguns eða að kveldi til.\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eSýnið aðgát við notkun plöntuverndarvara.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLesið ávallt upplýsingar á merkimiða og vöruupplýsingar áður en varan er notuð.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch3 class=\"p1\"\u003eSkammtar:\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eSkrautjurtir:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003eÚðið mest 4 sinnum með 7 daga millibili.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eGrænmeti:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003eÚðið mest 2 sinnum með 5–7 daga millibili\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eBerjarunnar:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003eÚðið mest 2 sinnum með 7 daga millibili\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eÁvaxtartré:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003eÚðið mest 4 sinnum með 7 daga millibili\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eVirkni efnisins byggist á snertivirkni, tryggið að plönturnar verði vel blautar eftir úðun. Reynið að þekja vel neðra borð blaða og vaxtarsprota með úða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eVið notkun á skrautjurtum er ráðlagt að prófa fyrst á fáum plöntum til að sjá hvort efnið skaði útlit plantnanna, forðist að úða beint á opin blóm.\u003c\/p\u003e\n\u003ch3 class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eVarúð\u003c\/b\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eFylgið notkunarleiðbeiningum til að varast\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"s1\"\u003ehættu fyrir heilbrigði manna og umhverfið.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003eSkaðlegt lífi í vatni, hefur langvinn áhrif. Mengið ekki vatn með efninu eða ílti þess (Koma skal í veg fyrir að mengun verði með afrennsli frá bæjarhlöðum og vegum).\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eGeymist þar sem börn ná ekki til. Má ekki geyma hjá matvælum og öðrum neysluvörum eða fóðri. Berist efnið í augu skal strax skola vandlega með miklu vatni. Fjarlægið snertilinsur ef það er auðvelt, skolið áfram. Tómar umbúðir og leifar má farga með heimilissorpi. Endurnýtið ekki tómar umbúðir.\u003c\/p\u003e\n\u003ch4 class=\"p1\"\u003eVirkt efni:\u003c\/h4\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003ci\u003ePýretrín\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e0,0459 g\/L (0,005% w\/w)\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eRepjuolía\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e8,25 g\/L (0,8% w\/w)\u003cbr\u003eTímabundin skráning nr: T-2013-080\u003cbr\u003eGeymist í 5 ár frá framleiðsludegi, sjá nánar dagsetningu á umbúðum.\u003c\/p\u003e\n\u003ch4 class=\"p1\"\u003eUppskerufrestir:\u003c\/h4\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli class=\"p1\"\u003eSkrautjurtir: engin.\u003c\/li\u003e\n\u003cli class=\"p1\"\u003e\u003cspan class=\"s1\"\u003eGrænmeti, berjarunnar og ávaxtatré: 3 dagar.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli class=\"p1\"\u003eSalat og kryddjurtir í gróðurhúsum: 7 dagar.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch4 class=\"p1\"\u003eLífrænar varnir:\u003c\/h4\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eEfnið hefur neikvæð áhrif á býflugur og nytjadýr\u003c\/p\u003e","brand":"Ilmbjörkin garðyrkjustöð","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45455782248527,"sku":null,"price":8490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0605\/5333\/0767\/files\/Insektfri-skordyraeytur.jpg?v=1780564463","url":"https:\/\/ilmbjorkin.is\/products\/skordyraeitur-insektfri-spruzit","provider":"Ilmbjörkin garðyrkjustöð","version":"1.0","type":"link"}