{"product_id":"hortensia-2026","title":"Hortensía 2026","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSívinsæl blómstandi planta sem skartar fallegum blómhausum sem geta staðið lengi. \u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eGott er að gefa henni súran áburð u.þ.b einu sinni í mánuði og vökva vel. Til að hún standi lengi er ráðlagt að umpotta henni strax í stærri pott. \u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eHentar vel í útiker og potta yfir sumartímann. \u003cbr\u003eÞarf mjög góða vökvun, moldin á alltaf að vera rök yfir sumartímann. Má draga úr vökvun yfir vetrarmánuðina.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVetrarumhirða\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar blómgunartíminn er liðinn er rétt að fjarlægja visin blómin. Þá fer plantan að huga að því að búa sig undir vetrardvala. \u003cspan\u003eYfir veturinn er hægt að halda hortensíu í pottum innandyra eða í skúr með nokkuð stöðugu lágu hitastigi, vertu bara viss um að láta jarðveginn ekki þorna meðan á vetrardvala hennar stendur.\u003c\/span\u003e Á vorin hefur hún hlaðið á sig blómbrumum sem skila enn meira blómskrúði. Gamlar og virðulegar hortensíur við bestu aðstæður geta orðið mannhæðarháar. Plönturnar þarf ekki að klippa niður nema sem nemur hugsanlegu vetrarkali. Ef greinar eru hins vegar orðnar langar og brothættar má stytta þær nokkuð. Að vori er hægt að færa plöntuna út í vel valinn stað í garðinum en þá er gott að muna að henni líkar illa kuldi og vosbúð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Gróðrarstöðin Ártangi","offers":[{"title":"13 cm pottur","offer_id":45025995194447,"sku":"70683493","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0605\/5333\/0767\/files\/rn-image_picker_lib_temp_c4103854-48b5-4a4b-9db9-4da94ba672f9.jpg?v=1774524158","url":"https:\/\/ilmbjorkin.is\/products\/hortensia-2026","provider":"Ilmbjörkin garðyrkjustöð","version":"1.0","type":"link"}